Þá er komið nýtt ár! Er ekki þá ekki venjan að gera upp árið sem var að líða? Nei ég eiginlega nenni því ekki. Í staðinn ætla ég að segja hvað ég ætla að gera á þessu ári.
Professionally ætla ég að standa mig vel í vinnunni. Ég er að vinna hjá mjög góðu og öflugu fyrirtæki þar sem ég fæ tækifæri til að dafna vel. Það er bara allt undir mér komið hvað langt ég vill fara ef ég get orðað það þannig. Ég er að að vinna að mjög spennandi verkefni núna sem tengist Ólympíuleikunum 2012 sem verða einmitt haldnir hér í London. Framundan á árinu bíða fleiri spennandi verkefni og jafnvel ferðalög á vegum fyrirtækisins á framandi slóðir.
Persónulega ætla ég að njóta þess að vera hérna í London. Það er nóg um að vera í þessari borg það er alveg á hreinu. Ég ætla líka í ferðalag á árinu. Hvert það verður veit ég ekki en það verður eitthvað spennandi ég er búinn að lofa sjálfum mér því.
Ég ætla að hreyfa mig meira á árinum, er nú þegar búinn að skrá mig á Tango og Salsa námskeið :) Eitthvað verður það skrautlegt :) ég hef einnig hug á að prufa yoga, svo ætla ég að ganga á fjöll og vonandi kemst maður á skíði líka.
2008 á verður gott ár!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Post a Comment