Ekki hefur stemmnigin verið góð hér í Canary Wharf undanfarna daga. Í byrjun vikunnar fóru eins og flest allir vita Lehman Brothers á hausinn og í kjölfarið misstu 5000 manns vinnuna á skrifstofum þeirra hérna í Canary Wharf.
Ég varð vitni af því þegar starfsfólk Lehman Brothers voru að yfirgefa vinnustað sinn haldandi á pappakössum með eigum sínum í. Sumir báru höfðuðið hátt aðrir voru með tárin augunum. Ekki hjálpaði það að það var fullt af ljósmyndurum sem voru að taka myndir um leið og fólk gékk út, ekki hefur það verið auðvelt fyrir aumingja fólkið.
Eini jákvæði punkturinn í þessu öllu saman að það verður aðeins rýmra á Jubilee línunni (sem er tube línann sem ég tek til Canary Wharf) næstu mánuði .
Thursday, September 18, 2008
Saturday, September 13, 2008
Besta kaffið í London
Þeir sem mig þekkja vita að ég er mikill kaffidrykkjumaður. Síðan ég flutti til London hef ég lengi verið að leita að besta kaffinu í borginni og loksins eftir þón okkra leit er ég búinn að finna það. Staðurinn heitir "Manmouth Coffee" og er með lítið kaffihús í Covent Garden og svo selja þeir einnig kaffi í Borough Market um helgar.
Það var doldið gaman að koma þarna því maður getur fengið að smakka kaffið áður en maður kaupir það (það er baunirnar til að taka með heim) og á meðan maður er að sötra á prufunum þá fær maður ítarlegar upplýsingar um kaffið, mjög skemmtileg, doldið eins og að vera í vínsmökkun :) Ég mæli eindregið með því að þeim sem þykir gott að sötra á góðu kaffi og hafa ekki áhuga á Starbucks sulli eða svoleiðis þá endilega að kíkja við hjá Manmouth Coffee.

Friday, August 01, 2008
Canary Wharf
Þá er maður byrjaður á nýju verkefni í Canary Wharf. Þetta er mjög spennandi og skemmtilegt verkefni sem tengist stórum íþróttaviðburði sem verður hér í London eftir 4 ár :) Gaman af því :)
Svo er maður að æfa á fullu, er búinn að vera duglegur að hlaupa og lyfta. Er að fara að kaupa mér nýtt fjallahjól í dag og svo er ég að fara á kayaknámskeið á sunnudaginn. Þannig að vonandi verður maður þokkelaga vel undirbúinn fyrir "Wild UK Challenge" keppnina í byrjun september.

Wednesday, July 23, 2008
Wild UK
Söfnunin fyrir Wild UK þrautina gengur vel, er þegar þetta er ritað kominn í 615 pund sem er mjög gott. Þarf að ná a.m.k 800 pundum til að fá að taka þátt.
www.justgiving.com/valtyrgunnarsson
www.justgiving.com/valtyrgunnarsson
Smá pæling
Hvað þýðingu hefur það þegar maður notar poke á Facebook? Er þetta nútíma daður eða hvað? Hef oft velt þessu fyrir mér síðan ég byrjaði að nota Facebook, afhverju er fólk að nota poke?
Er kannski dónalegt að nota poke? hmm jæja best að halda áfram að vinna.
Er kannski dónalegt að nota poke? hmm jæja best að halda áfram að vinna.
Sunday, July 20, 2008
Wild UK Challenge
Ég er að fara að taka þátt í mikilli keppni núna í haust þar sem ég mun hlaupa, hjóla, sigla og synda yfir 160KM. Keppnin fer fram hér í Englandi og til þess að tryggja þátttöku mína þarf ég að safna smá pening fyrir góðgerðarmálefni.
http://www.princes-trust.org.uk/Main%20Site%20v2/supporters/Whats%20in%20your%20region/wild%20uk.asp
Þetta verður mjög erfitt og því þarf ég á ykkar hjálp að halda. Með því að kíkja á þessa síðu hér http://www.justgiving.com/valtyrgunnarsson getið þið stutt mig og hjálpað mér að ná takmarkinu.

Tuesday, July 08, 2008
Garðyrkja og Nouvelle Vague
Það er nú ansi nice að eftir að maður er búinn að vera vinna í garðinum alla helgina að enda helgina á því að skella sér á Bossa nova festival á South Bank þar sem aðalnúmerið var Nouvelle Vague , mjög skemmtilegt band og skemmtileg stemmning á svæðinu.
Subscribe to:
Posts (Atom)